27.11.2007 | 20:14
Prinsessan á bauninni!
Var að skoða bloggið mitt og eina vinkonan er hætt! Bara strákavinir! Reyndar hef ég nú yfirleitt átt fleiri strákavini en stelpu? ? ? Hmm?
En bara það besta að frétta héðan. Var með "dinner" á lau. og auðvitað bara strákar í mat þar sem að Auður var í Köben. En rosalega vel heppnað! Leið eins og ég væri prinsessan á bauninni. Geggjaður matur og góður félagsskapur. Ingvar stoppaði nú ekki lengi en tók nú samt aðeins lagið! Takk elskan! Svo var fjör bara langt fram undir morgun. Skruppum aðeins út og fórum á barinn sem að er næst mér sem að er Fy&Bi, homma og lesbíustaður! Skemmtum okkur konunglega þar! Held að maður fari nú samt ekkert að koma út úr skápnum!
kv. strákastelpan
Athugasemdir
hmmmmmmm ...... þú verður bara að einsetja sér það að hafa bara karlmenn á blogginu þínu..
Brynjar Jóhannsson, 27.11.2007 kl. 20:21
Já er að spá í það! Ekki slæmur félagsskapur!
Kristín Jakobsdóttir Richter, 27.11.2007 kl. 20:24
Það er nú gott Kristín mín að þú eigir enn vinkonur fyrir utan "bloggheiminn". En það er alveg rétt hjá þér, það eru alltaf karlmenn einhvers staðar í kringum þig
Hrefna Rún (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 21:53
Bara smá svona strákakvitt,á laugargegi
Ottó Einarsson, 1.12.2007 kl. 07:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.