Mmmmm! Sólin! :)

Sólin aðeins að láta sjá sig. Búin að vera á svölunum hjá Auði í dag á meðan að börnin fóru í bíltúr með pabba sínum......sem að er í heimsókn.  Auður fer að taka lyklana af mér, heheh, þegar að hún er ekki heima og sólin skín fer ég á svalirnar hennar. Halo  Besta sólin í bænum þar! Er líka komin með ágætislit eftir sumarið (á svölunum hennar). Er svona eins og svartur albinói á litinn, Tounge, fæ ekki lit að ráði, verð voða skrýtin, bleik-rauð-ljósbrún-gyllt.........Grin með dash af freknum! hehe. Alexander segir að ég sé "ginger"! hehe!LoL En vona að veðrið verði sæmilegt á morgun, það er nú spáð skýjuðu en ég ætla bara að blása þau í burtu.Tounge Það á allavega að vera heitara á morgun!

Hilsen..........


Husk, hvad blomster kan göre!

Finnst þetta snilldarauglýsingar! LoL


Hugsaðu þér hvað blóm geta gert mikið!


Á ekki til orð!

Skil ekki hvað það er mikið af ljótum fréttum þessa dagana?  Endalaus slys, lát, hamfarir eða stríð! Frown Hvað er málið eiginlega? Veit ekki hvað eða hvort hægt sé að flokka "ljótast" en þessi saga minnti mig á bókina/bækurnar "A Child Called It". Frown Barnamisnotkun af verstu gerð (aftur ef að það er e-ð til "ljótast"? alltaf hræðilega ljótt). Sem móðir get ég engan veginn skilið þetta því að ef að maður er ekki þeim mun klikkaðri vill maður ALLTAF börnunum sínum það besta! ! ! ! 

http://www.tampabay.com/features/humaninterest/article750838.ece

Hér má lesa þessa ljótu sögu ef maður hefur maga í það! Angry Vá hvað maður verður reiður!

Hlakka ekkert smá til að fá að knúsa mín á morgun! Grin


Er allt..............

að fara fjandans til?  Maður opnar ekki fyrir fréttir nema heyra af stríði, náttúruhamförum eða slysum! Woundering  Hvar endar þetta?
mbl.is Þúsundir flýja heimili sín á Filippseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Isaac Hayes látinn

Annar snillingur fallinn frá!


mbl.is Isaac Hayes látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sitt af hverju tagi.......

Hér er allt að gerast.  Esbjergfestival byrjaði á föstudaginn. Það þýðir tónleikar og skemmtun út um allan bæ í heila viku. Fór í mat til Auðar í gær og gátum við hlustað á þá hjá henni. Búum báðar í miðbænum. Smile Og það voru sko ekki lög af verri endanum, bara allt sem að er vinsælast í dag, danskt að sjálfsögðu. Voða gaman að fólk sé að týnast tilbaka. Wink

Börnin mín koma á miðvikudaginn og vaaááááá hvað ég hlakka til. Er farin að sakna þeirra rosalega. Alexander er búinn að vera heima í 3 vikur og Thelma í 6 Frown 

Þegar að ég fékk diskinn um daginn þá fékk ég tvo. Hinn sem að ég fékk er nýji diskurinn með Sigurrós og er ég búin að vera að hlusta mikið á hann núna. Verð bara að segja að mér finnst hann frábær. Grin Frekar frábrugðinn hinum.

Það ætlar enginn að benda mér á að það er C í cold en ekki K! Tounge Fer þetta ekkert í taugarnar á fólki? hehehLoL


Another Kold War ?

Spyr sá sem ekki veit?  Ekki snýst þetta um olíu líka?
mbl.is ESB gagnrýnir Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland........bezt í heimi?

? ? ? ? Er það málið? Af hverju deilum við sætum með suður-Ameríku og austur Evrópuþjóðum?
mbl.is Íslensk eymd mælist 16,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki viðeigandi á þessum degi?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband