Laugardagsþankar.

Héðan er ekki mikið að frétta! Verkefnið í fullum gangi hjá mér. Alexander gengur rosa vel í skólanum, hann var að sýna mér e-ð próf eða könnun sem að hann tók um daginn og var með sex atriði sem að hann annaðhvort var með vitlaus eða náði ekki að klára vegna tímaleysis. En hann er einmitt nýjastur í bekknum ásamt öðrum. Hinir voru með upp í tuttuguogeitthvað villur. Þannig að það er spurning hvað hann stoppar lengi þarna? Vona bara að hann komist sem fyrst í danskan. Wink
Hann er alltaf á fullu í klifrinu og mér skilst að það sé gítarnámskeið í boði sem að byrjar í febrúar.

Thelmu gengur líka rosa vel og ég vona líka að hún fari að komast í danskan, en hún er byrjuð að fara eftir skóla í "fritidshjem" og líkar bara svona rosa vel! Grin Fullt af stelpum þar til að leika við! Fær að dansa og föndra, og fullt annað.

Við fórum í gær og keyptum "jólagjafir" hehe. Fórum og versluðum föt á þau fyrir peninginn sem að þau fengu í jólagjöf! Bæði verða rosa fín núna! Wink Svo er víst afmæli í næstu viku! 14 ár!!!!  "I´m getting older" Crying

Er annars að hlusta á Bylgjuna á netinu! Grin 
Hilsen,

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband